Skip to main content

Mikilvægt er fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga að kynna sér vel og læra á þær lausnir sem fyrirtæki á Íslandi eru að bjóða upp á. Hér má sjá eina.

X-ROAD Í SKÝINU

Straumurinn X-Road er gagnaflutningslag íslenska ríkisins sem tryggir örugg rafræn samskipti milli stofnana og fyrirtækja. Straumurinn byggir á X-Road tækninni frá Nordic Institute for Interoperability Solutions (NIIS). Straumurinn er þegar kominn í notkun hjá nokkrum opinberum stofnunum og margar fleiri munu fylgja í kjölfarið. Andes, í samstarfi við Amazon Web Services (AWS) og NIIS hefur þróað lausn sem gerir mögulegt að innleiða X-Road í skýinu og þannig tengjast Straumnum á öruggan og fljótlegan hátt og án mikils tilkostnaðar.

Fimmtudaginn 17. mars kl 10:00 mun Andes standa fyrir vefnámskeiði (webinar) þar sem sérfræðingar frá Andes, AWS og NIIS munu kynna X-Road tæknina og hvernig hægt er að tengjast Straumnum með uppsetningu á X-Road í AWS skýinu. Vefnámskeiðið er ætlað stafrænum leiðtogum og sérfræðingum í upplýsingatækni sem láta sig öruggan gagnaflutning varða.

Fyrirlesarar:

Petteri Kivimäki, Petteri er tæknistjóri hjá NIIS. Hann er tölvunarfræðingur að mennt og vottaður skýjasérfræðingur. Petteri hefur leitt X-Road innleiðingarverkefni í Finnlandi og stýrði samstarfsverkefni á milli Finnlands og Eistlands sem snéri að því að samræma open-source þróun á X-Road á milli landanna.

Marcus Lock, Marcus er viðskiptastjóri hjá AWS með áherslu á opinbera geirann á Norðurlöndum. Hann veitir stuðning og ráðgjöf í öllum samskiptum við AWS og tryggir að hæstu gæðakröfur séu viðhafðar í skýja vegferð viðskiptavinanna.

Tõnis Pihlakas, Tönis er Solutions Architect hjá AWS og leiðbeinir viðskiptavinum á leið þeirra upp í skýið. Hann er með meistaragráðu í upplýsingafræði og margra ára reynslu af uppbyggingu kerfa sem reiða sig á X-Road.

Hrafnkell Brimar Hallmundsson, Hrafnkell er tölvunarfræðingur og AWS vottaður skýjasérfræðingur með áralanga reynslu af rekstri og hönnun upplýsingakerfa í skýinu.

Dagskrá :

10:00 – 10:20 – Petteri Kivimäki – Introduction to X-Road and its Development Model (ath. fyrirlesturinn er á ensku)

10:20 – 10:40 – Marcus Lock & Tõnis Pihlakas – Amazon Web Services Enabling X-Road in the Cloud (ath. fyrirlesturinn er á ensku)

10:40 – 11:00 – Hrafnkell Brimar Hallmundsson – X-Road Security Server tilbúinn til notkunar í skýinu

11:00 – 11:10 – Q&A

Hægt er að skrá sig hér